Herra forseti. Aftur verð ég að leiðrétta hv. þingmann vegna þess að í greinargerð með þingsályktunartillögunni að umsókninni eru tilgreindir þeir meginhagsmunir sem Íslendingum ber að standa vörð um og ef vikið er frá þeim verði málið að koma til kasta Alþingis. Þar á meðal eru þessi atriði sem ég nefndi og eru grunnhagsmunamál íslensks landbúnaðar, þ.e. matvæla- og fæðuöryggi. Það er því misskilningur hjá hv. þingmanni að hægt sé að hunsa það eins og hann er að segja.
Ég vil síðan örstutt víkja að öðru atriði, herra forseti. Skýrt er kveðið á um að við skulum ekki hefja neina aðlögun á samningstímanum. Samt er á bls. 28 í skýrslunni vikið að því að koma eigi í veg fyrir möguleika komufarþega til Keflavíkurflugvallar að versla í fríhöfninni. Það sé í samræmi við reglur innan Evrópusambandsins að þegar farþegar koma inn í landið (Forseti hringir.) megi þeir ekki versla tollfrítt og skattfrítt. Þetta er tíundað sérstaklega. Svo heyrði ég í fréttum nýverið (Forseti hringir.) að nú þegar ætti að taka þetta upp í fríhöfninni í Keflavík (Forseti hringir.) þannig að aðlögunin gerist býsna hratt, herra forseti. (Forseti hringir.) Þetta er rétt komið á prent í skýrslunni og þá á að fara að koma í veg fyrir að fólk megi versla í fríhöfninni við komuna til landsins. (Forseti hringir.) Aðlögunin gengur hratt fyrir sig, herra forseti.
(Forseti (KLM): Ég vil minna þingmenn á að virða þau tímamörk sem sett eru, sem allir þurfa að fara eftir og sætta sig við.)