Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[15:39]
Hlusta - Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það gæti verið fróðlegt fyrir hv. þingmann að kynna sér aðeins ástandið í Grikklandi, Spáni og fleiri ríkjum Suður-Evrópu, vaxtastigið þar, atvinnustigið. Þá er staðreyndin sú að við Íslendingar eigum auðvitað í ákveðnum vandræðum en það eru líka vandamál innan Evrópusambandsins. Ég held að umræðurnar í Suður-Evrópu og fréttirnar þaðan beri þess glögglega merki.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann að einu. Hann kom inn á að lykilatriði í sjávarútvegsviðræðunum væri að koma Evrópusambandinu í skilning um að við værum ekki að veiða úr sameiginlegum stofnum. Getur hv. þingmaður útskýrt þetta aðeins frekar og getur hann einnig útskýrt fyrir okkur hvað honum finnist um makríldeiluna svokölluðu? Þar erum við Íslendingar einmitt að veiða úr sameiginlegum stofni (Forseti hringir.) og stöndum í samningum við Evrópusambandið þar að lútandi, hvað hann eigi við með því að við séum ekki að veiða úr sameiginlegum stofnum.

Næsta ræða