Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[15:53]
Hlusta - Horfa

Guðmundur Steingrímsson (U) (andsvar):

Frú forseti. Það er mjög mikilvægt að nálgast ekki bara lýðræði sem atkvæðagreiðslu eða kosningu. Lýðræði verður líka að vera viðvarandi sem hugsjón og trú.

Ég er sammála því að það sé í anda lýðræðisins að klára það sem réttkjörið Alþingi er búið að ákveða að gera og vera ekkert að hringla of mikið með það. Mér finnst það vera í anda lýðræðisins þegar sagt er að fara eigi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um mjög mikilvægan samning að stjórnsýslan og þingheimur einbeiti sér að því að landa sem bestum samningi og reyni að svara sem flestum spurningum sem kunna að vakna, efna til umræðu og þar fram eftir götunum. Þannig sé (Forseti hringir.) lýðræðishugsjónin efld og ræktuð í þessu máli og mörgum öðrum.

Næsta ræða