Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 89. fundur,  26. apr. 2012.

utanríkis- og alþjóðamál.

761. mál
[16:14]
Hlusta - Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sú snjóhengja sem hv. þingmaður lýsti í ræðu sinni á ekkert skylt við evruna. Það þarf að finna lausn á þeim vanda sem sú snjóhengja er og það er óháð evrunni. Það er orðið dálítið þreytt þegar hv. þingmenn Samfylkingarinnar koma hér ítrekað og fjalla um að evran sé lausn á vanda okkar frá A til Ö. Vextir heimilanna eiga að lækka. Hver eru vaxtakjörin núna til gríska ríkisins? Það á að lækka hér matvælaverð. Hver er staðan í dag varðandi verð á matvælum á Íslandi versus meginland Evrópu? Svona mætti áfram telja.

Maður finnur það á mörgum samfylkingarmönnum í dag að þeir eru að verða smeykir um að þessi Evrópuvegferð njóti ekki eins mikils stuðnings og áður var. Það hefur komið skýrt fram, hvert vígið á fætur öðru er að falla. Meiri hluti fyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins er til að mynda mótfallinn ESB-aðild og þá segja kannski sumir að þar hafi síðasta vígið fallið.

Af því að ég kom hér inn á samskipti Íslands og Kína áðan og þá sóknarmöguleika sem við Íslendingar eigum á auknu samstarfi við þessa þjóð, og fjallað er lítillega um í skýrslu utanríkisráðherra, má benda á að útflutningur frá Íslandi til Kína hefur aukist um 60% milli áranna 2010 og 2011. Það er fullur vilji til fjárfestinga í atvinnulífi og annað því um líkt. Það er alveg ljóst að það sama er að gerast um Evrópu og þetta hagkerfi mun rísa mjög á næstu árum.

Það var opnað á að hefja á nýjan leik samningaviðræður um fríverslunarsamning milli Íslands og Kína. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er hvort hann telji í fyrsta lagi ekki veruleg sóknarfæri fólgin í auknum viðskiptum og samskiptum á milli Íslands og Kína. Í annan stað spyr ég hvort (Forseti hringir.) hv. þingmaður hafi ekki áhyggjur af þeirri staðreynd að Evrópusambandsaðild muni gera fríverslunarsamning sem þennan að engu.

Næsta ræða