Frú forseti. Hv. þingmaður er nú yfirleitt með allra gleggstu hlustendum á þinginu. Ég svaraði þessum spurningum hans í ræðu minni í morgun og áréttaði í andsvörum.
Varðandi landbúnaðarkaflann sagði ég að unnið væri af fullum krafti að því núna að mæta opnunarviðmiði sem tengist landbúnaðarkafla. Um leið og sú tímasetta áætlun sem þar er óskað eftir liggur fyrir verður hún kynnt utanríkismálanefnd. Hún verður jafnframt með vissum hætti undirstaða samningsafstöðu sem þá verður tekið til við að vinna að. Um það hvenær verður hægt að opna kaflann til samningaviðræðna sagði ég í dag að ég vænti þess að það yrði í haust. Það er stutt yfirlýsingu stækkunarstjórans í síðustu viku sem sagðist meta stöðuna þannig að hægt yrði að opna alla kafla fyrir lok ársins.
Varðandi fisk hef ég skýrt utanríkismálanefnd frá því hvernig vinnan við samningsafstöðuna er. Hún er í tveimur hlutum. Hún er gildur kafli þar sem lögð er áhersla á sérstöðu Íslands, sem síðan er notuð til að rökstyðja sjálfa samningsafstöðuna. Hún byggir líka að verulegu leyti á þeim grófu línum sem lagðar eru í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar. Þess er sömuleiðis vænst að hægt verði að opna þann kafla fyrir lok ársins. Þá styðst ég aftur við yfirlýsingu Stefans Füles stækkunarstjóra. Ég verð þó að segja — ég hef sagt það á opnum fundi í utanríkismálanefnd og get sagt það hér — að ég tel að það gæti allt eins verið að það mundi dragast fram yfir áramót. Í öllu falli mun þjóðin sjá samningsafstöðu Íslands í tíma til þess að geta tekið afstöðu til þeirra sem þar fara höndum um fyrir kosningar.