Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir samantekt hennar. Mig langar að spyrja hana einnar spurningar vegna breyttrar skipunar stjórnar Ríkisútvarpsins. Ekki er langt um liðið síðan samþykkt voru sérlög um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn þar sem ákveðið var að stjórn þeirrar stofnunar væri þannig að starfsmenn ættu ekki að eiga sæti í henni. Þegar spurt var í bréfi frá starfsmönnum þeirrar stofnunar hvers vegna það væri ekki — vegna þess að þeir notuðu nákvæmlega sömu orð og hæstv. ráðherra notar nú, það yrði til þess að auka ákveðið lýðræði að starfsmenn væru inni — þá var sagt að þær breytingar á stjórn, þ.e. að starfsmenn sætu þar ekki inni, væru gerðar til að færa stjórnir stofnana ríkisins í sama farveg. Nú erum við komin með Ríkisútvarpið og þá á allt í einu að hverfa frá því hvernig uppbyggingu stofnana er háttað og setja starfsmenn inn í. Þá spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað veldur þessum sinnaskiptum?