Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 90. fundur,  27. apr. 2012.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

748. mál
[16:09]
Hlusta - Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þarf að rifja betur upp þessi tilteknu lög sem hv. þingmaður vísar í áður en ég þori algerlega að fara með þetta, en það er alveg rétt að það hefur ekki verið almenn tilhneiging í hinum opinbera geira að hafa fulltrúa starfsmanna í stjórnum, ég held að það sé alveg rétt hjá hv. þingmanni.

Ég mun þurfa að skoða aðeins betur þessi tilteknu lög en að þessu leyti teljum við — og það er hreinlega út af lýðræðishlutverki stofnunarinnar, Ríkisútvarpsins, sem er meira en annarra hefðbundinna stofnana getum við sagt, því tel ég mikilvægt að það endurspeglist í starfsháttum og það eru rökin fyrir þessu.

Næsta ræða