140. löggjafarþing — 92. fundur,  30. apr. 2012.

niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

689. mál
[20:52]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður nefndi er það frumvarp sem við ræðum hérna ákaflega gott mál. Þetta er jöfnunargjald á hitaveitur og kemur til móts við smærri hitaveitur úti um allt land.

Varðandi hitt málið sem hv. þingmaður nefndi get ég því miður ekki svarað hér og nú, var ekki búin að taka stöðuna á því ákveðna verkefni, en ég get svarað hv. þingmanni annaðhvort munnlega eða skriflega, allt eftir því hvernig hv. þingmaður óskar, þegar ég er búin að afla mér upplýsinga í ráðuneytinu um stöðu þess máls.