Forseti. Ég tók eftir því að hv. þingmaður ræddi um starfsmenn Stjórnarráðsins og stöðu þeirra í þeirri orrahríð sem leiðir af breytingum á stjórnkerfi. Ég tek undir orð hv. þingmanns um að innan Stjórnarráðsins starfar mjög margt af hæfu og góðu fólki. Það fer hins vegar ekki hjá því að hluti af svona stórum breytingum eins og hér um ræðir kallar á mikið álag ofan á önnur verkefni. Ég spyr hv. þingmann þeirrar spurningar hvort það geti ekki hugsanlega verið hluti af skýringunni á því að hv. þingmaður leggst gegn þessari tímasetningu, að gera svona miklar breytingar tiltölulega skömmu fyrir kosningar, að álag í stjórnsýslunni er töluvert mikið, í ljósi þeirra breytinga sem þegar hafa verið gerðar og ekki síður í ljósi þeirra verkefna sem þar er við að fást. Hlýtur það ekki líka að vigta inn í mat hv. þingmanns þegar hún leggst gegn málinu eingöngu á grunni tímarammans?