Forseti. Hv. þingmanni var tíðrætt um það hvernig umræðan um breytingarnar á Stjórnarráðinu hefði verið 2007. Ég vil leyfa mér að vitna til orðræðu frá fyrri umræðu um þá þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir. Með leyfi forseta, hljóðar hún svo:
„Breytingin að því er varðar efnahags- og viðskiptaráðuneytið [hins vegar] og uppskiptingu þess og niðurlagningu er óunnin, órædd nokkurs staðar utan ríkisstjórnarinnar sjálfrar og órökstudd.“
Síðar segir, með leyfi forseta:
„Hins vegar er verið að snúa algerlega frá þeirri stefnu sem gefin var upp í stjórnarsáttmála og fyrri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar …“
Þessi beina tilvitnun sem lýkur með þessum orðum er ekki frá stjórnarandstæðingi, hún er ekki frá því á árinu 2007, hún er frá því fyrir mánuði síðan, frá stjórnarliða, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Ég spyr hv. þm. Lúðvík Geirsson: Ertu sammála þessum fullyrðingum?