140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:35]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá utanríkisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 883, um starfsmannahald og rekstur sendiráða Íslands, frá Vigdísi Hauksdóttur. Ráðuneytið tilkynnir að úrvinnsla fyrirspurnarinnar hefur reynst tímafrekari en ætlað var og mun svar berast eigi síðar en 14. maí nk.