breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Nú hef ég ekki titlað mig hingað til sem allan Sjálfstæðisflokkinn eða að ég tali fyrir alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hvað þá alla kjósendur hans eða flokksmenn. Ég er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ég stend fyrir það sem ég segi en ekki fyrir það sem allir aðrir segja.
Það er svart og hvítt, undirbúningurinn núna og 2007. Það á að vera svart og hvítt. (Gripið fram í.) Já, það á að vera þannig og ég geri kröfu til þess vegna þess að hér varð hrun. Ég vil nefna að niðurstaðan í landsdómsmálinu, þessi mjög veika sakfelling, var eiginlega sakfelling á stjórnsýslunni, að stjórnsýslan hefði ekki unnið rétt. Það kom líka fram í rannsóknarskýrslunni aftur og aftur að stjórnsýslan brást að einhverju leyti. Þess vegna er þetta svo mikilvægt mál, það er svo mikilvægt að stjórnunin sé góð. Og ég segi að menn misstu af góðu tækifæri til að koma með þetta fram: Hérna er strúktúrinn, svona ætlum við að hafa þetta, svona verður þetta, hér er Hagstofan, hér er Landsvirkjun, hún heyrir undir auðlindaráðuneytið eða hún heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið og allar stofnanirnar … (Gripið fram í.) Nei, en að ríkisstjórnin, framkvæmdarvaldið, sýni löggjafanum og öllum almenningi hvernig hún ætli að hafa þetta. Þannig leit ég á þessa þingsályktunartillögu. Svo hefur hún að sjálfsögðu meiri hluta fyrir því og meiri hlutinn samþykkir að svona eigi þetta að vera, en það er ekki gert. Það finnst mér verulega miður af því að ég geri meiri kröfur núna en 2007, ég geri miklu meiri kröfur. Ég vil að stjórnsýslan sé góð og skilvirk og helst ódýr en hún þarf að þjóna sínu hlutverki og ég er ansi hræddur um að þegar þetta verður samþykkt komi upp deilur, ég er hræddur um það. Kannski gerist það ekki. Kannski er voðalega mikil samstaða um allt, hvar Hafrannsóknastofnun eigi að vera o.s.frv. Það getur vel verið að það sé þannig, allt í lagi, en ég sé það ekki í þessari tillögu.