Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[14:28]
Hlusta - Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi þetta skipulag að öðru leyti, sem hv. þingmaður kallar eftir að ég svari, sem lýtur að því hvernig staðið verði að auðlindanýtingunni og reyndar auðlindaverndinni í þessu nýja fyrirkomulagi sem verið er að boða, þá verð ég að viðurkenna að ég verð dálítið að skila auðu. Það sem ég get stuðst við eru annars vegar þær ræður sem hafa verið fluttar og þau andsvör sem hafa verið gefin við spurningum, m.a. frá mér, um þessi mál og ef ég reyni að búa til drög að einhverju púsli í þessu þá er púslið þannig í mínum huga að eftir mikla eftirgangsmuni sagði hæstv. forsætisráðherra það býsna skýrt að Hafrannsóknastofnun mundi verða undir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá vitum við það.

Hins vegar vitum við að aðdragandinn að þessu máli eru mikil átök sem hafa verið. Það kom mikil krafa um að færa þennan málaflokk undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Það varð ekki niðurstaðan og þá var búinn til vinkill og vinkillinn er svona: Hafrannsóknastofnun á að vera undir atvinnuvegaráðuneytinu en síðan á umhverfis- og auðlindaráðuneytið að fá einhverja mjög grunsamlega og illa skilgreinda aðkomu að auðlindanýtingunni og hvernig að henni verður staðið. Hér er sagt, með leyfi forseta, að nýja umhverfis- og auðlindaráðuneytinu sé ætlað það mikilvæga hlutverk að leggja grunn að sjálfbærri nýtingu auðlinda í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Hvað þýðir það? Með hvaða hætti hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið aðkomu að til dæmis nýtingarstefnunni sem Hafrannsóknastofnun hefur frumkvæði að að móta og hver á að fara með þá aðkomu fyrir hönd ráðuneytisins? Væntanlega ekki starfsmenn ráðuneytisins? Eiga einhverjar aðrar stofnanir að hafa beinan íhlutunarrétt um það? Þessum spurningum er ekki svarað og meðan þessum einföldu spurningum er ekki svarað verð ég að segja eins og er að þetta púsl verður aldrei fullgert.

Næsta ræða