140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[20:38]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti gat þess við upphaf þessa dagskrárliðar að skilaboðum hefði verið komið til hæstv. forsætisráðherra (VigH: Og hvar er hún?) og svör hafa ekki borist til baka. (VigH: Á hún ekki að vera á þessum fundi?) Ég vil benda hv. þingmönnum á að við erum í síðari umræðu og formaður og varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sitja í salnum og það er á þeirra ábyrgð þá að svara spurningum sem bornar eru fram.