Hæstv. forseti. Mér finnst að hv. þingmaður ætti að geta svarað því hvers vegna þurfi að ræða þetta mál í 20, 30 klukkustundir, og kannski ætlast hv. þingmaður til þess að það sé rætt í einhverja sólarhringa í viðbót og þá verður bara að hafa það, þá tökum við því.
Þegar Stjórnarráðinu var breytt fyrir fjórum árum eða fimm árum tók þrjár klukkustundir að klára það og voru það ekki minni breytingar. Þá var bara meiri hluti þingsins virtur sem núverandi stjórnarandstaða gerir aldrei nokkurn tíma. Ég sagði hér í dag: Það er hægt að ljúka starfsáætlun á tilsettum tíma ef minni hlutinn virðir það að það er meirihlutastjórn í landinu sem er að reyna að koma málum fram. Stjórnarandstaðan er staðráðin í að koma í veg fyrir það en hún mun auðvitað ekkert komast upp með það. Ef við þurfum að vera hér lengur til að klára þessi mál, fram í júní eða júlí, þá gerum við það. Og þegar talað er um að við höfum lagt mál fram seint verð ég bara að segja að hv. þingmaður ætti að skoða hvernig mál hafa verið lögð fram til dæmis í vetur. 63 stjórnarfrumvörp voru lögð fram fyrir jólin og helmingurinn af þeim er óafgreiddur. Ég sagði líka og hef sagt það í þinginu að bara á þremur síðustu vikum hafa ekki verið afgreidd nema tíu mál, þar af örfá frumvörp og þingsályktunartillögur. Það er mikill seinagangur í þinginu og greinilega mikill ásetningur hjá stjórnarandstöðunni að koma í veg fyrir eðlilega afgreiðslu á málum.
Mér finnst að hv. þingmaður eigi að taka því sem hér hefur verið boðið af formönnum þingflokka Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, að taka þessi mál á dagskrá en sýna þá samningsvilja til að sett verði dagsetning á hvenær þessu máli sem við viljum að verði afgreitt á yfirstandandi þingi ljúki. (Forseti hringir.) Það hefur verið talað um málið sennilega á annan sólarhring og því er hvergi nærri lokið, ef maður skoðar þá mælendaskrá sem hér liggur fyrir. Þetta er mjög ósanngjörn málsmeðferð af hálfu hv. þingmanns (Forseti hringir.) og stjórnarandstöðunnar í þessu máli. (Gripið fram í.)