Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 94. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[00:01]
Hlusta - Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ætla að taka að mér hlutverk hv. þm. Péturs H. Blöndals, þar sem klukkan var á tifi um miðnætti, og minnast á að þegar forseti þingsins tók við störfum eftir kosningar 2009 var markmið hennar að gera Alþingi að barnvænum vinnustað. [Hlátur í þingsal.] Ég ætla að nota tækifærið og óska hæstv. forseta þingsins Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur til hamingju með hvað henni tekst vel upp að stjórna þinginu. Við höfum séð í dag að ýmsir úr stjórnarliðinu vilja hafa hér dagskrárvald, nú síðast hv. þm. Björn Valur Gíslason, og svo má ekki gleyma hæstv. forsætisráðherra þegar hún steytti hnefann og vildi fá dagskrárvaldið í sínar hendur.

Frú forseti. Ég vildi bara segja að það er náttúrlega ekki hægt að halda þingmönnum hér kvöld eftir kvöld, nótt eftir nótt, og það eru nefndafundir klukkan hálfníu í fyrramálið. Ég lýsi yfir miklum (Forseti hringir.) vonbrigðum með stjórn þingsins og mér finnst það ekki forseta (Forseti hringir.) til framdráttar að stjórna fundinum með þessum hætti.

Næsta ræða