Virðulegi forseti. Ég tek undir þær óskir sem hér koma fram og vil líka ítreka þá ósk að hæstv. forsætisráðherra og helst forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar séu viðstaddir þessa umræðu en dvelji ekki langdvölum frammi í matsal allt kvöldið. Þeir hafa greinilega tíma til að vera í þinginu en eru ekkert að fylgjast með umræðum og það er auðvitað vanvirðing við þingið.
Það er fróðlegt að rifja upp ummæli þessara sömu ráðherra við sömu aðstæður og vitna í það sem ráðherrarnir höfðu sagt, með leyfi forseta:
„… ekki verði brotin sú hefð sem yfirleitt er reynt að fylgja, að það séu ekki kvöld- og næturfundir tvo daga í röð heldur líði gjarnan sólarhringur á milli þangað til aftur er gripið til slíkra úrræða …“
Ég get vitnað í mörg fleiri ummæli þessara ágætu hæstv. ráðherra og mun gera það í annarri ræðu minni undir þessum lið sem ég hef heimild til að fara í.
Ég vil ítreka þá beiðni til virðulegs forseta að ráðherrarnir, a.m.k. forsætisráðherra sé hvött til að vera viðstödd þessa umræðu en sýni ekki þinginu þá vanvirðingu sem framkoma hennar ber með sér.