Virðulegi forseti. Ég hef mikla trú á sitjandi hæstv. forseta og veit að hún talar skýrt og er ekki með málalengingar og orðskýringar sem þingheimur á erfitt með að skilja þannig að ég óska eftir skýrum svörum frá hæstv. forseta um hvað hún hyggist halda þennan fund lengi. Í gær var nefnilega rætt um miðnótt sem var hálfeitt, við erum komin fram yfir það. Síðasti hæstv. forseti nefndi „enn um stund“ og við erum alla vega komin tæplega einn og hálfan tíma síðan enn um stund var viðkvæðið. Ég vil því að spyrja hæstv. forseta, sem er íslenskukennari og fyrrverandi skólastjóri, og hlýtur að geta svarað skýrt. Ég óska eftir skýrum svörum, virðulegi forseti, vegna þess að þetta gengur ekki svona mikið lengur, tel ég.