140. löggjafarþing — 95. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[12:43]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég gleðst yfir því að forseti hafi úrskurðað um að breyta dagskrá og get líka lýst því yfir að þetta er í anda þess sem við höfum boðið og þrátt fyrir að ekki hafi náðst samningar um það er ég glaður yfir að þetta hafi orðið niðurstaðan. Ég get lýst því yfir að þingflokkur framsóknarmanna mun gera sitt til að greiða fyrir því að mál komist úr 1. umr. og til nefnda þingsins þannig að það verði sómi og góður bragur á störfum þingsins í næstu viku.