Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að ekki var gert ráð fyrir þeim kostnaði sem af þessu hlýst með nokkrum hætti í fjárlögum þessa árs. Það er engu líkara en þetta hafi bara sprottið upp úr hattinum, hafi verið til komið til að púsla brotunum saman eftir ráðherrakapalinn sem var á margan hátt misheppnaður. Það blasti auðvitað við að ríkisstjórnin var að losa sig við ráðherra sem ekki (Gripið fram í.) teymdust vel. Hérna grípur hæstv. utanríkisráðherra fram í. Það blasir við, svo að maður fræði hæstv. utanríkisráðherra um það þótt hann viti það sjálfur, að fyrrverandi hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra vildi halda á Icesave-málinu með öðrum hætti. (Utanrrh.: Nei.) Hann vildi vinna það í miklu meira samstarfi við stjórnarandstöðuna. Þegar kemur að sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum blasti það líka við að losna varð við hv. þm. Jón Bjarnason úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu vegna þess að hann var ekki tilbúinn til þess að láta teyma sig í blindni til Brussel. Hann var ekki tilbúinn að gefa eftir grundvallarhagsmuni þjóðarinnar í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Hæstv. utanríkisráðherra veit þetta því að þetta segja embættismenn honum. Þeir fögnuðu í Evrópusambandinu (Utanrrh.: … Jóns Bjarnasonar.) — þeir fögnuðu … (Utanrrh.: Hann var ráðherra …)
Frú forseti. Gæti ég fengið þögn á ráðherrabekknum? (Gripið fram í: … sagði Jón Bjarnason.) Frú forseti. Gæti ég fengið þögn?
(Forseti (ÞBack): Gefa hv. þingmanni hljóð.)
Í Brussel var fagnað þegar hæstv. ríkisstjórn og hæstv. utanríkisráðherra hafði tekist að henda út eina manninum sem stóð í lappirnar í ríkisstjórninni. (Gripið fram í.) Þetta er bara staðreynd málsins.
Þetta er púsluspilið sem er verið að púsla eftir þennan misheppnaða kapal. Verði þjóðinni að góðu að (Forseti hringir.) þurfa að sitja uppi með þetta allt saman.