140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 65/2009 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn.

538. mál
[22:01]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2009 og varðar flutningastarfsemi. Hér er einnig rétt að geta þess að framsögumaður af hálfu nefndarinnar er hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en ég mæli fyrir nefndarálitinu.

Markmið þessarar tilskipunar er að innleiða í löggjöf Evrópusambandsins alþjóðlegar viðmiðanir varðandi mengun, sem á upptök sín í skipum, og tryggja að einstaklingar, sem bera ábyrgð á losun, sæti hæfilegum viðurlögum, með það að markmiði að bæta siglingaöryggi og auka vernd umhverfis sjávar gegn mengun af völdum skipa.

Fram kemur í athugasemdum við tillöguna að til að innleiða tilskipun 2005/35 hér á landi þarf að breyta lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda eða setja ný lög hvað varðar mengun frá skipum sem á sér stað á úthafinu. Fyrirhugað er að umhverfisráðherra leggi fram frumvarp til slíkra lagabreytinga á næsta löggjafarþingi, til innleiðingar á tilskipuninni.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson, Helgi Hjörvar og Ragnheiður E. Árnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, framsögumaður, Gunnar Bragi Sveinsson, Mörður Árnason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.