Virðulegi forseti. Ég fagna því að þetta mál er komið til atkvæða, og þótt fyrr hefði verið. Skipulag Stjórnarráðsins er nú fært til nútímans. Ég á von á því að það muni reynast stjórnsýslunni vel og þá um leið öllum þeim sem hún á að þjóna, fólkinu í landinu.