140. löggjafarþing — 98. fundur,  11. maí 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 85/2011 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

539. mál
[11:54]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg):

Forseti. Það er augljóslega enginn ágreiningur um þetta mál né önnur þau sem hér er verið að afgreiða sem varða EES. Ég vil fyrir siðasakir taka fram að það er gríðarlega mikilvægt að fylgjast vel með því hvernig þetta verður útfært og að við séum öll vel vakandi og starfrækjum skyldur okkar vegna þess að það getur skipt miklu máli fyrir þá sem þetta mun lenda á. Ég vildi bara taka það fram vegna þess að það skiptir máli í framhaldinu.