140. löggjafarþing — 98. fundur,  11. maí 2012.

fjármálafyrirtæki.

762. mál
[12:17]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Því er til að svara að það eru í raun aðrar reglur sem fjalla um viðskipti milli fjármálafyrirtækja heldur en þær reglur sem eru undir í þessu frumvarpi, það er tekið á því í öðru samhengi. En ég vænti þess að hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni taka þessar athugasemdir, sem og aðrar sem hafa komið fram í umræðunni, til skoðunar.