140. löggjafarþing — 99. fundur,  15. maí 2012.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[13:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 9. maí sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sbr. ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um ársskýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir árið 2011.

Þá hefur forseti með bréfi, dags. 10. maí sl., óskað eftir því við fjárlaganefnd, sbr. ákvæði 5. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga janúar til mars 2012.