140. löggjafarþing — 99. fundur,  15. maí 2012.

kynning á Icesave í ríkisstjórn.

[13:37]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áður og hef í raun engu við það að bæta. Ég minnist þess ekki að þessi ríkisstjórn hafi nokkurn tíma haldið leynilegan ríkisstjórnarfund. Þeirra er getið í bókunum og þeim má finna stað í opinberum gögnum.