frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mig langar einnig að spyrja hv. þingmann þar sem við erum að fjalla um þetta frumvarp núna í maí 2012 að inni í hinni svokölluðu landsáætlun um útgreiðslu IPA-styrkjanna á árunum 2002–2013 er gert ráð fyrir 5 milljörðum. Eins og hv. þingmaður veit gekk mjög erfiðlega að fá skýr svör frá ráðuneytunum, alla vega þannig að ég gæti áttað mig fullkomlega á því, sérstaklega við fjárlagagerðina fyrir árið 2011 um hvort búið væri að taka inn einhverja IPA-styrki. Væri ekki æskilegt að það væri líka skoðað sérstaklega af efnahags- og viðskiptanefnd þegar málið kemur þangað aftur milli 2. og 3. umr. og kortlagt hvort tekið hafi verið við einhverjum styrkjum, hvernig þeir hafi verið meðhöndlaðir og hvort staðið hafi verið við þær skuldbindingar sem fylgja því að taka við styrkjunum því að skilyrðin eru alveg skýr af hálfu Evrópusambandsins að þeir eiga að fara að fullu til verkefnanna en ekki til að greiða skatta eða tolla? (Forseti hringir.) Ég spyr hv. þingmann hvort ekki sé æskilegt að farið verði sérstaklega yfir það hvort stjórnvöld hafi uppfyllt (Forseti hringir.) þær skuldbindingar.