Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 101. fundur,  18. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:20]
Hlusta - Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég hef áhyggjur af á Alþingi er þegar þingmenn koma upp og fullyrða að hitt og þetta sé frábært. Um daginn fór fram utandagskrárumræða þar sem kom fram að þingmenn Samfylkingarinnar teldu að þeir hefðu náð stórkostlegum árangri hvað varðar aga í ríkisfjármálum. Það er einfaldlega ekki rétt.

Það felst ekki í fjölmörgum umsögnum sem berast að hér hafi farið fram efnisleg umræða. Það sem ég taldi að hefði átt að koma fram er að allar þessar umsagnir væru teknar og þær væru ræddar í nefnd. Hv. formaður nefndarinnar kom fram og sagði að sú efnislega umræða hefði því miður ekki náðst, ef ég man rétt. Ég hef líka heyrt það frá þeim sem áttu sæti í stjórnlagaráði. Efnisleg umræða fer þannig fram að tillögur og athugasemdir eru teknar, þær vegnar og metnar og svo koma fram breytingartillögur. Síðan átti að koma fram frumvarp frá Alþingi, það var forsendan fyrir því að ég studdi það að stjórnlagaráð yrði sett á laggirnar á sínum tíma.

Ég ætla ekki að karpa um það hér við hv. þingmann hvort efnisleg umræða hafi farið fram. (Forseti hringir.) Ég mundi miklu frekar vilja að flokksmenn hennar kæmu hingað (Forseti hringir.) og ræddu efnislega þau atriði sem (Forseti hringir.) eru í tillögum stjórnlagaráðs.

Næsta ræða