Virðulegur forseti. Hv. þingmaður fór í ræðu sinni vel yfir þennan mun, ef það má orða það þannig, eða þær vangaveltur sem nauðsynlegt er að hafa uppi um muninn milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Ég er í grunninn sammála tóninum í ræðu hv. þingmanns. Mig langar að biðja þingmanninn að svara þeirri spurningu hvort Icesave-atkvæðagreiðslan hefði getað farið fram ef 67. gr. væri í núgildandi stjórnarskrá um þjóðréttarskuldbindingar og skattamálefnin.
Ég spyr þessarar spurningar þó að ég í raun viti svarið vegna þess að ég held að það sé mjög mikilvægt að hún komi sem oftast fram. Það er hárrétt sem hv. þingmaður sagði, það á til dæmis að spyrja þessara spurninga í þeirri skoðanakönnun sem á að gera, hvort þjóðin vilji hafa þann varnagla að það sé hægt að senda slíkt í atkvæðagreiðslu eða leita álits þjóðarinnar.
Mig langar líka að spyrja hv. þingmann um tillögu sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur lagt hér fram um að kosið verði um Evrópusambandið samhliða þessari skoðanakönnun eða leitað eftir hug þjóðarinnar, þ.e. hvort halda eigi áfram þeirri för sem við erum í varðandi það mál allt saman. Þess vegna leita ég eftir þeirri skoðun þingmannsins hvort það eigi að nýta þessa könnun og spyrja einnig þeirrar spurningar. Þar er um að ræða líklega eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar á komandi árum, ef af verður, því að ef gengið verður inn í þann félagsskap er þar um að ræða eitthvert mesta afsal fullveldis sem nokkurt ríki getur hugsað sér.