Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 102. fundur,  19. maí 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:26]
Hlusta - Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við höfum verið að velta fyrir okkur forgangsröðun í þinginu og mig langar að spyrja þingmanninn: Hvað í stjórnarskrá, bæði þeirri sem er í gildi í dag og þeim tillögum sem við erum að fjalla um núna, er til þess að bæta hag heimilanna, til þess að stuðla að fjölgun atvinnutækifæra, til þess að auka hagvöxt eða til þess að bæta hag eldri borgara? Er eitthvað í þessum tillögum sem tekur á þessum stærstu vandamálum sem Ísland glímir við í dag?

Í öðru lagi langar mig að spyrja þingmanninn út í þá tillögu sem hann var að kynna hér, að þjóðin gæti breytt stjórnarskrá, ef ég skildi tillöguna rétt, með bindandi atkvæðagreiðslu. Mig langar að biðja þingmanninn, ef hann getur í örstuttu máli, að útskýra þetta aðeins betur. Ef ég hef skilið hann rétt gerir þingmaðurinn ekki ráð fyrir aðkomu Alþingis í því ferli eða mér fannst að minnsta kosti ekki nógu glöggt hver aðkoma Alþingis ætti að vera. Því spyr ég þingmanninn þessara spurninga.

Eflaust er það mjög mikilvægt fyrir marga að stjórnarskránni sé breytt og að ákveðnir þættir séu skýrðir í henni. Það verður að virða það. Þeir sem ganga þar fremstir í flokki verða að viðurkenna líka að aðrir hafa aðrar skoðanir. Þess vegna er mjög sérkennilegt að sjá einhvers konar hópefli hér þar sem þingmenn eru hvattir til að hætta efnislegri umræðu um þetta mál. Hv. þm. Pétur H. Blöndal er búinn að halda örfáar ræður um tugi breytingartillagna sem þingmaðurinn lagði fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, efnislegar tillögur, og ég krefst þess að við fáum tækifæri til (Forseti hringir.) að ræða þær.

Næsta ræða