Virðulegi forseti. Ég lít þannig á að á endanum muni þjóðin greiða atkvæði um stjórnarskrá og þá yrði það bindandi kosning. Það er hins vegar val sem við getum þá tekið á Alþingi þegar við erum búin að uppfylla þær skyldur sem eru í núgildandi stjórnarskrá.
Ég tek undir með hv. þingmanni, það er mjög eðlilegt að setja þröskulda fyrir því að nokkuð geti talist bindandi. Þar af leiðandi mundi það að mínu viti knýja fram aukna samstöðu eða ætti að gera það. Ég hygg að hugmynd þingmannsins um þetta ferli sé alls ekki svo galin þegar við förum að hugsa um tilganginn með henni, að bæta samstöðu og tryggja að á bak við breytingar sem þjóðin samþykkir séu sem flestir. Það er að sjálfsögðu til bóta og styrkir þar af leiðandi stjórnarskrána.
Ég vil hins vegar þakka þingmanninum fyrir þau orð sem hann hafði uppi um forgangsröðina. Ég er sammála honum um að aðrir hlutir eru brýnni. Ég tek hins vegar líka fram að ég er meðal þeirra sem hafa mælt fyrir því að vinna við breytingar á stjórnarskrá haldi áfram og að henni sé fylgt eftir. Það eru ákveðnir hlutir sem hægt er að breyta án þess að allt fari á hvolf. Ég er hins vegar ekki sammála því að það þurfi að skrifa nýja stjórnarskrá eins og stjórnlagaráð tók upp á að gera. Ég held að það hafi ekki endilega verið skynsamlegt. Mikilvægt er þó að menn viðurkenni að sú stjórnarskrárvinna sem er í gangi og búið að inna af hendi muni ekki á nokkurn hátt taka á mikilvægustu verkefnum dagsins í dag, sem eru auðvitað að fjölga störfum og tryggja að hagur heimilanna fari batnandi þannig að samfélagið allt geti rifið sig upp úr þeim dal sem það er búið að vera í í allt of mörg ár.