Frú forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Margréti Tryggvadóttur, sem er í Hreyfingunni, um viðræðuslit Hreyfingarinnar við ríkisstjórnina. Í fyrsta lagi: Hvaða mál ríkisstjórnar ætlaði Hreyfingin að styðja og hvaða málum ætlaði Hreyfingin að ná fram?
Síðan er spurning til hv. þingmanns: Voru væntingar Hreyfingarinnar óraunhæfar eins og komið hefur fram?
Ein spurning í viðbót: Fékk Hreyfingin stjórnarskrána á dagskrá gegn því að styðja ríkisstjórnina og af hverju vill Hreyfingin ekki ræða stjórnarskrána efnislega? Þeir hafa ekki tekið neinn þátt í umræðunni efnislega.
Ég vil síðan spyrja hv. þingmann að eftirfarandi: Ætlar Hreyfingin að styðja hæstv. ríkisstjórn áfram til góðra mála eins og komið hefur fram og stuðla þannig að áframhaldandi smáskammtalækningum sem aldrei munu duga til að rétta stöðu heimilanna eins og hv. þingmaður hefur sagt og stuðla að áframhaldandi verðtryggingu og engri framtíðarsýn í málefnum þeirra sem eru með verðtryggð lán?