140. löggjafarþing — 108. fundur,  29. maí 2012.

almennar stjórnmálaumræður.

[19:51]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Gengið er til dagskrár og tekið fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa fjórar mínútur. Dregið var um röð þeirra.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s., í annarri Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvest., en í þeirri þriðju Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvest.

Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra í annarri, en í þriðju umferð Skúli Helgason, 7. þm. Reykv. s.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðaust., í annarri, en í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvest.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, en Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s., í annarri umferð talar Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk., og Þór Saari, 9. þm. Suðvest. í þeirri þriðju.

Ræðumenn utan flokka eru: Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykv. s., sem talar síðust í fyrstu umferð, Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest., talar síðastur í annarri umferð og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurk., talar síðastur í þriðju umferð.