140. löggjafarþing — 111. fundur,  1. júní 2012.

fundarstjórn.

[19:36]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Nú er komið að mestu hátíðarhelgi íslenskra sjómanna og íslenskrar sjómannastéttar þar sem sjómannadagurinn og sjómannahelgin eru að renna upp og flotinn að sigla í land. Menn eru komnir í hátíðarskap og þá er fyrirhugað að halda þingfundi áfram fram eftir kvöldi. Fjöldi þingmanna tekur þátt í þessum hátíðahöldum um allt land og mér finnst þingið sýna þessari stétt vanvirðingu með því að gera mönnum ekki kleift að komast til heimabyggða sinna til að taka þátt í þessum hátíðahöldum með sjómönnum. Ég hvet virðulegan forseta til að beita sér fyrir því að hér ljúki fundum á sómasamlegum tíma þannig að menn geti farið að huga að því að koma sér heim á leið og fagna á þessari helgi með sjómönnum.

Virðulegi forseti. Þetta er ræða sem ég flutti 3. júní 2011 og ég endurflyt hana nú við nákvæmlega sömu aðstæður þar sem meiri hlutinn og hæstv. forseti ætlar að bjóða okkur upp á að hafa ekki dagskrá fram undan, að við vitum ekki hvernig þetta á að vera. Sjómenn ætlast til þess að þingmenn (Forseti hringir.) kjördæmanna taki þátt í þeim hátíðahöldum sem fram undan (Forseti hringir.) eru. Þetta er ekki bjóðandi, virðulegi forseti, þetta er ekki bjóðandi okkur sem erum í (Forseti hringir.) stjórnarandstöðu, (Forseti hringir.) þetta er ekki bjóðandi íslenskri sjómannastétt á þessari hátíðarhelgi.