Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 112. fundur,  4. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[23:31]
Hlusta - Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að hugtakið réttlæti hafi verið ofnotað af núverandi ríkisstjórn og kannski misst dálitla merkingu þegar það kemur úr þeim ranni.

Varðandi réttlætið finnst mér að við þurfum að gæta meðal annars að jafnræði atvinnugreina á Íslandi. Þegar við horfum til nýtingar náttúruauðlinda, svo sem fallvatna, olíu og sjávarútvegs, finnst mér eðlilegt að menn reyni að hafa eitthvert samræmi í skattlagningu þegar kemur að auðlindum þjóðarinnar. Það er engin slík hugsun í þessu.

Ég veit ekki hvort réttlætið í skattlagningunni sé það að eftir því sem skattprósentan sé hærri, þeim mun meira réttlæti sé náð. Þegar frumvarpið var lagt fram kom að minnsta kosti í ljós að í sumum tilvikum var skatturinn 140%, þ.e. hann var meiri en innkoma fyrirtækjanna. Það segir sig náttúrlega sjálft að enginn atvinnurekstur þrífst við slíkar kringumstæður. Það undirstrikar líka það að við getum ekki haft þá formúlu að með endalaust hærri sköttum aukist tekjurnar. Ég tel að þessi ríkisstjórn sé komin langt fram úr sér þegar kemur að hækkun á gjöldum og sköttum, hvort sem það er á fyrirtækin eða heimilin í landinu.

Reyndar höfum við því miður horft upp á það á undangengnum mánuðum að gjalda- og skattahækkanir ríkissjóðs hafa leitt til þess að verðlag hefur hækkað í landinu. Mikil verðbólga er komin af stað sem hefur mjög mikil áhrif. Nú er ég reyndar farinn að tala um annað mál, verðtryggðar skuldir heimilanna, en allt er þetta hluti af þessu réttlætistali stjórnarinnar sem mér finnst einstakir ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og VG hafa ofnotað dálítið að undanförnu.

Næsta ræða