140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

varamaður tekur þingsæti.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Birni Vali Gíslasyni, um að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, sé erlendis í opinberum erindagjörðum. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hennar, Ólafur Þór Gunnarsson.

Ólafur Þór Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og er boðinn velkominn til starfa.