140. löggjafarþing — 114. fundur,  6. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[17:41]
Horfa

Forseti (Álfheiður Ingadóttir):

Forseti treystir því að hv. þingmenn vilji gæta að virðingu Alþingis. Forseti mun ekki endurtaka þau orð sem hv. þingmaður viðhafði, en vill taka fram að það dregur ekki úr skyldu hv. þingmanna um að gæta orða sinna, né heldur þeirri skyldu forseta að minna hv. þingmenn á það, að vísa til þess að aðrir hafi við annað tækifæri viðhaft svipað eða sama orðaval.