140. löggjafarþing — 117. fundur,  9. júní 2012.

fundarstjórn.

[10:46]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að ef virðulegur forseti ætlar sér að leggja þetta mál upp eða breyta með einhverjum hætti farvegi þessa máls í þinginu á þeirri forsendu að fyrir liggi einhver grundvallarsátt um allar forsendur þessa máls tel ég rétt og mér skylt að taka það fram að ég er ekki sáttur við margar af þeim grundvallarforsendum sem lagðar eru, hef ekki verið sáttur við þær og mun ekki verða sáttur við þær.