140. löggjafarþing — 118. fundur,  11. júní 2012.

varamenn taka þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Birgittu Jónsdóttur, 9. þm. Reykv. s., um að hún sé erlendis í opinberum erindagerðum. Einnig hefur borist bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiði E. Árnadóttur um að Ásbjörn Óttarsson, 1. þm. Norðvest., geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum.

Í dag taka sæti á Alþingi varamenn þeirra, Baldvin Jónsson og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir. Þau hafa bæði tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og eru boðin velkomin til starfa á ný.