140. löggjafarþing — 119. fundur,  12. júní 2012.

rannsókn kjörbréfs.

[10:37]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg):

Frú forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom saman og fór yfir kjörbréf Guðrúnar H. Valdimarsdóttur sem er 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Reykv. s. en landskjörstjórn gaf kjörbréfið út í morgun, 12. júní. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leggur einróma til að kjörbréf Guðrúnar H. Valdimarsdóttur verði samþykkt.