140. löggjafarþing — 120. fundur,  13. júní 2012.

lengd þingfundar.

[15:47]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Mér er eiginlega vandi á höndum því mér finnst að við eigum að leggja okkur fram og ég sé ekki eftir þeim tíma sem við verjum til að vinna að góðum verkum. En ég velti fyrir mér hvað við séum að gera hérna. Ætlum við til dæmis að nota þennan tíma í kvöld til að reyna að klára einhver góð mál? Ég veit það ekki og þess vegna sit ég hjá.