140. löggjafarþing — 121. fundur, 14. júní 2012.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Birni Val Gíslasyni, um að Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykv. n., sé erlendis í opinberum erindagerðum og geti því ekki sinnt þingstörfum. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Auður Lilja Erlingsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi á kjörtímabilinu og er boðin velkomin til starfa á ný.