140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[16:35]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Björn Valur Gíslason) (Vg) (andsvar):

Forseti. Haldinn var einn fundur málið á milli umræðna þar sem nefndarmenn lögðu mat á það hvort ástæða þætti til að fjalla frekar um málið. Það var álit nefndarinnar að svo væri ekki.

Það kom ekki heldur til umræðu í nefndinni að vísa málinu til annarra þingnefnda vegna þess að hér er mál sem heyrir undir fjárlaganefnd, varðar fjármál ríkisins og ábyrgð á láni, og fjárlaganefndarmönnum þótti ekki ástæða til að vísa því til annarra nefnda þingsins.