140. löggjafarþing — 123. fundur,  16. júní 2012.

fjármálafyrirtæki.

762. mál
[14:09]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti, örstutt. Hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni um hvað verði um umframstofnfé þegar sparisjóði er breytt í hlutafélag. Hvað verður um sjálfseignarstofnunina, hvað verður um þetta göfuga fé?

Síðan vildi ég nefna það að til þess að auka hlut sparisjóðsins um 100 milljónir eru 0,2% í innlánstryggingarsjóð algjörir smámunir.