140. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[20:39]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég er ekki alls kostar sátt við þessa útfærslu á veiðigjöldunum og hefði viljað byggja þau upp öðruvísi en ég er mjög sátt við það prinsipp að þjóðin fái arð af auðlindum sínum og ætla að greiða atkvæði með þessu frumvarpi.