140. löggjafarþing — 126. fundur, 19. júní 2012.
fjármálafyrirtæki.
762. mál
Virðulegi forseti. Ég get með engu móti stutt þessa breytingartillögu vegna þess að hér er verið að gera upp á milli félagaforma. (Gripið fram í.) Hér er verið að leggja til að kaup á stofnfé fái skattafslátt en ekki hlutafé. Ég er aftur á móti samþykkur þeirri meginhugsun að kaup á hlutafé eigi að njóta skattfríðinda en þetta get ég ekki stutt og segi því nei.