140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

fjögurra ára samgönguáætlun 2011--2014.

392. mál
[11:59]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil bara í tilefni af þessu vekja athygli á því að umhverfis- og samgöngunefnd leggur einmitt til flýtingu framkvæmda vegna vegagerðar í Bjarnarfirði og um Veiðileysuháls og þar af veginn í Bjarnarfirði um fjögur ár. Við tökum heils hugar undir áhyggjur hv. þingmanns af samgöngum í Árneshreppi og í Strandasýslu og leggjum okkar af mörkum í þeim breytingartillögum sem greidd verða atkvæði um á eftir til að flýta þeim framkvæmdum.