140. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2012.

nauðungarsala, aðför, meðferð einkamála og fjármálafyrirtæki.

716. mál
[18:24]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Áþekk tillaga og hv. þingmaður leggur hér fram kom fyrir nefndina og réttarfarsnefnd taldi að ekki ætti að samþykkja þá tillögu. Mér þykir þessi breytingartillaga koma mjög bratt inn í umræðuna, sé mér ekki fært að styðja hana og mun því sitja hjá.