140. löggjafarþing — 128. fundur,  19. júní 2012.

frestun á fundum Alþingis.

859. mál
[23:20]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Ég tel ekki rétt að fresta þingi nú þegar mörg góð mál hafa verið fullunnin í nefndum þingsins. Ég tel það ekki eftir okkur að starfa í nokkra daga í viðbót til að klára þau mál. Skuldamál heimilanna eru enn óleyst. Það er verkefni sem við öll vorum kosin til að leysa en höfum ekki gert. Því segi ég nei.