140. löggjafarþing — 129. fundur,  19. júní 2012.

þingfrestun.

[23:40]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, frá 19. júní 2012 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 11. september 2012.

Gjört á Bessastöðum, 18. júní 2012.

Ólafur Ragnar Grímsson.

___________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir krefjandi störf og óska þeim sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.